Þriggja ára stúlka vaknar morgun einn í Stokkhólmi og er alein í íbúðinni. Hún veit að pabbi er í útlöndum en hvar eru mamma og bróðir hennar? Hún er læst inni og enginn kemur að vitja hennar. Og dagarnir líða … Tvö mál hafna samtímis á borði lögregluforingjans Connys Sjöberg og hann þarf að takast á við þau ásamt félögum sínum á stöðinni. Sextán ára stúlka hefur fundist myrt á salerni um borð í Finnlandsferjunni og óttast er a... meira