Adolf Hitler vaknar einn góðan veðurdag árið 2011 í almenningsgarði í Berlín eftir að hafa sofið frá árinu 1945. Hann veit ekkert hvað hefur gerst í millitíðinni en hyggst halda sínu striki hvað sem á dynur. Allir sem á vegi hans verða telja að hér sé snjall leikari á ferð og hann vekur hvarvetna hrifningu fyrir sannfærandi gervi og ótrúlega innlifun í hlutverk Foringjans. Fljótlega kemst hann í kynni við framleiðendur skemmtiþáttar í sjónvarp... meira