Gamla hótelið í Boonsboro er að vakna til lífsins eftir þrotlausa vinnu Montgomery-bræðranna. Miðbróðirinn Owen stýrir byggingarfyrirtæki fjölskyldunnar af festu – en gleymir að reikna með Avery, æskuástinni sinni, og áhrifunum sem hún hefur á hann. Og á hótelinu eru dulmögnuð öfl á sveimi. Owen og Avery eiga sameiginlega fortíð og samband þeirra í nútímanum er flóknara en þau hafa áttað sig á – en hvað með framtíðina? ... meira