Nær þúsund ár eru liðin frá því myrkraöldin leið undir lok, þegar vitringarnir sjö komu saman og sigruðu skuggana. Hin myrka tíð hefur að mestu gleymst. En þótt minni manna sé brigðult gleyma hin fornu öfl engu. Innvígsluhátíðin nálgast, dagurinn þegar þulnameistarinn tilkynnir Ragnari, Breka, Sirju og jafnöldrum þeirra í þorpinu hvaða hlutverkum og skyldum þeim er ætlað að gegna. Krakkarnir ættu að njóta seinustu áhyggjulausu da... meira