Lýst er eftir átta ára stúlku sem hverfur úr skólanum einn haustdag. Undarlegur spádómur unglings kemur upp úr hylki sem innsiglað var fyrir tíu árum, í kjölfarið taka voveiflegir atburðir að gerast í Rekjavík. Og lögreglan er ráðalaus. Hér stíga fram á sviðið sömu aðalpersónur og í síðustu bók Yrsu Sigurðardóttur, DNA, bestu íslensku glæpasögunni árið 2014.