Ungur maður fær óvænt upp í hendurnar 30 milljónir króna. Miðaldra hjón verða fyrir því að húsið þeirra er málað appelsínugult í skjóli nætur. Þessir óvæntu atburðir koma miklu róti á líf persónanna, ekki síst aðalpersónunnar þar sem allt fer á hvolf. Hendingskast er fyrsta skáldsaga Sigurjóns Bergþórs Daðasonar. Undir lygnu yfirborði kraumar ólga og togstreita – og ísmeygileg kímni.