Ef maður hrindir af stað of stórum byltingum sviðnar jörð og rýkur úr rústum. Það verður mannfall og sér stórlega og jafnvel varanlega á umhverfinu. Mannsaldrar geta farið í að jafna sig eftir stórar byltingar og sjálfur skaðast maður oftast mest, tortímir jafnvel sjálfum sér. En ef maður gerir litlar byltingar, alla daga, ef maður gerir byltingar sem fæstir taka eftir, þá hreyfist veröldin með manni þangað sem förinni er heitið. ... meira