Það sigrar enginn heiminn sem ekki getur sigrað tímann. Eitthvað furðulegt hefur gerst. Mannkynið húkir í draugalegum kössum og bíður betri tíma. Á meðan hefur skógurinn yfirtekið borgirnar, úlfar ráfa um götur og skógarbirnir hafa hertekið verslunarmiðstöðvar. Hvað kom fyrir? Enginn getur svarað því nema gömul kona sem vakir í einu húsanna. Áratugum saman hefur hún safnað sögum um prinsessuna af Pangeu og föður hennar, Dímon konung, sem í árdag... meira