Hér segir frá óvæntu ævintýri Bagga. Og frammistaða hans var sannarlega ekki fyrirsjáanleg ... Bilbó Baggi var fullkomlega sáttur við fábrotið lífið í holu sinni. Þessi heimakæri Hobbiti yfirgaf helst ekki híbýli sín í Bagga-botni, ef nóg var að bíta og brenna. En dag nokkurn var knúið dyra og rólyndislífi hans raskað. Þar var kominn galdramaðurinn Gandalfur, í félagi við þrettán dverga. Vildu þeir fá Bilbó með sér í mikinn leiðangur og lét hann ... meira